Glímudrottning Íslands, Svana Hrönn Jóhannsdóttir, tekst á við sjöfaldan World Wrestling Entertainment-meistara, kanadísku glímudrottninguna Trish Stratus, annað kvöld í glímuhúsi Ármanns.
Ísland er einn af viðkomustöðum Trish í för hennar um heiminn, en næst liggur leiðin til Indlands. Með henni er kanadískt sjónvarpsfólk sem vinnur að gerð þáttaraðar um ferðina fyrir Discovery-sjónvarpsstöðina og Travel Channel.
Hér á landi hefur Trish kynnt sér íslensku glímuna, sem hún segir afar frábrugðna fjölbragðaglímunni sem hún eigi sjálf að venjast.
Greint er frá heimsókn Trish á vef Glímusambands Íslands, og um World Wrestling Entertainment má fræðast hér.