Kanadíska glímudrottningin Trish Stratus laut í lægra haldi fyrir Glímudrottningu Íslands, Svönu Hrönn Jóhannsdóttur, er þær tókust á í gærkvöldi.
Í frétt á vef Glímusambands Íslands segir að um 300 manns hafi fylgst með viðureigninni og hvatt keppendur, en ekki hafi mátt í milli sjá hvor glímudrottningin hafi átt sér fleiri stuðningsmenn.
Alls glímdu þær Svana og Trish fimm glímur og sigraði Svana í þrem en Trish í tveim.
Sjá nánar um glímurnar í frétt á vef Glímusambands Íslands.