Fregnir herma að Britney Spears hafi að undanförnu fengið óhugnanleg bréf og böggla frá einhverjum hrelli. Mun henni vera svo brugðið vegna þessa, að hún hefur leitað til alríkislögreglunnar (FBI) með sendingarnar.
Meðal þess sem hrellirinn hefur sent Britneyju eru nákvæmar útlistanir á því hvernig búa skuli til sprengju, og annað með „hótunum og furðulegu bulli,“ eins og heimildamaður E! Online komst að orði.
Talsmaður lögreglunnar í Los Angeles sagði að ekki væri hafin formleg rannsókn á málinu, en verið væri að kanna „ásakanir sem komið hafa fram á undanförnum mánuðum.“