Leyndardómurinn á bak við fegurð Catherine Zetu-Jones skal upplýstur hér og nú: Elizabeth Arden's Prevage húðkrem sem kemur í veg fyrir öldrun húðarinnar. Hin 38 ára þokkadís segist ekki geta lifað án húðkremsins þar sem það heldur henni unglegri.
„Ég held að leyndarmálið felist í þessu kremi. Þegar maður byrjar að nota það þá er ekki hægt að hætta. Ég nota það á hverjum degi“, sagði leikkonan. En húðkremið er ekki það eina sem Zeta-Jones notar til að fríska upp á útlitið að sögn heimildarmanns. Fyrir um ári síðan sagði hann að hún notaði fyrsta flokks kavíar á hárið sitt. „Catherine uppgötvaði kavíar meðferðina og fannst árangurinn hreint magnaður. Hárlitur hennar varð líflegri og meira glansandi“ var haft eftir heimildarmanni. Zeta-Jones vildi nú ekki taka undir þessi ummæli.
Einnig vildi fegurðardísin leiðrétta fréttaflutning frá fyrr í vikunni. Fjallað var um að Zeta-Jones sagðist vera orðin of gömul fyrir kynlífssenur og væri hætt þeim. „Ég sagði þetta ekki. Hafið ekki áhyggjur, þið fáið að sjá mig. Það var vitlaust haft eftir mér. Ég hef ekki ennþá náð hæstu hæðum kynþokka míns“ sagði hún.