Kryddpían Mel B. er nú sögð hyggja á frekari barneignir í kjöllfar nýafstaðinnar tónleikaferðar sveitarinnar.
Mel, sem innan hópsins gengur undir nafninu hræðilega kryddið, giftist kvikmyndaframleiðandanum Stephen Belafonte, á síðasta ári. Skömmu fyrir brúðkaupið eignaðist hún dóttur með fyrrum kærasta sínum kvikmyndaleikaranum Eddie Murphy en hann neitaði að staðfesta að hann væri faðir barnsins þar til niðurstöður erfðaefnisprófs lágu fyrir. Þá á hún tíu ára dóttur með fyrri eiginmanni sínum dansaranum Jimmy Gulzar.
„Mel þráir að eignast barn. Hana hefur langað til þess frá því hún giftist Stephen í Las Vegasí júní. Hún gat hins vegar ekki byrjað að reyna fyrr en eftir að tónleikaferðalagi Kryddpíanna lauk,” segir ónefndur heimildarmaður breska tímaritsins Closer. „Hún elskar Stephen og hún er loks að skapa sér nafn í Bandaríkjunum. Henni finnst þetta vera rétti tíminn til að eignast barn."