Jackass-stjarnan Steve O var í vikunni lagður inn á geðsjúkrahús í Los Angeles vegna gruns um sjálfsvígshugleiðingar. Hann mun hafa verið ákærður fyrir meðferð kókaíns í síðustu viku og herma heimildir að hann hafi átt við fíkniefnavanda að stríða í nokkurn tíma.
„Hann er á spítala núna og mun væntanlega vera þar næstu tvær vikurnar,“ sagði heimildarmaður.