Britney Spears og Mel Gibson snæddu saman kvöldverð á laugardagskvöldið á Romanov veitingahúsinu í Los Angeles, og spjölluðu saman í um tvo tíma.
„Það var spennandi að hafa þau hérna bæði. Okkur skilst að vel hafi farið á með þeim og Britney virtist spennt,“ sagði innanbúðarsmaður á Romanov.
Britney er 26 ára, en Gibson 52. Með Britneyju var náin vinkona hennar, Victoria, og Gibson var í félagsskap nokkurra vina sinna.