Ósæmilegar myndir af bandarísku leikkonunni Kristin Davis eru nú sagðar breiðast út eins og eldur í sinu um Netið. Samkvæmt upplýsingum á slúðursíðunni tmz.com voru myndirnar teknar af fyrrverandi kærasta leikkonunnar árið 1992, en á þeim sjást þau í hinum ýmsu kynlífsathöfnum.
Talsmaður leikkonunnar hefur hins vegar sagt að umræddar myndir séu ekki af henni, auk þess sem hann hefur þvertekið fyrir þann orðróm að kynlífsmyndband með Davis í aðalhlutverki sé einnig til. Davis er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum vinsælu Sex and the City.