Jamie Spears, faðir söngkonunnar Britney Spears, hefur fengið leyfi dómara til að selja sjö glæsibifreiðar hennar en Jamie var úrskurðaður fjárhaldsmaður dóttur sinnar í febrúar. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.
Jamie er einnig sagður búa sig undir að fara fram á heimild dómara til þess að flytja hana nauðuga frá Los Angeles til Louisiana, þar sem fjölskylda hennar býr. Er hann sagðir vilja koma henni í burtu frá ljósmyndaranum Adnan Ghalib og vonast til þess að hún geti endurbyggt samband sitt við móður sína og systur.
Samkvæmt upplýsingum fjölmiðla í Bandaríkjunum er söngkonan á góðri bataleið eftir að hún var tvisvar lögð inn á geðdeild í upphafi þessa árs og hefur hún endurheimt takmarkaðan umgengisrétt sinn við tvo unga syni sína. Nýlega hafnaði dómari hins vegar beiðni föður hennar um að ákæra gegn henni, vegna aksturs án tilskilinna skilríkja, yrði felld úr gildi.