Neil Aspinall, fyrrum rótari, viðskiptafélagi og vinur Bítlanna, er látinn 66 ára að aldri. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Paul McCartney og Ringo Starr og segjast þeir eiga góðar minningar um merkan mann.
Aspinall hætti á síðasta ári störfum sem forstjóri Apple Corps., fyrirtækis Bítlanna sem sér um viðskiptahagsmuni þeirra.