Ellen DeGeneres, sem stýrir spjallþætti í bandarísku sjónvarpi, hefur nú skákað Oprah Winfrey og er orðin vinsælasti sjónvarpsmaður vestanhafs ef marka má könnun, sem AOL hefur gert á vefsíðu sinni. Í könnuninni kom einnig fram, að Larry King er sá sjónvarpsmaður, sem talinn er hafa minnstan kynþokka til að bera.