Áhorfsmet á gamanþáttinn How I met Your Mother var slegið í Bandaríkjunum í fyrradag og ástæðan mun vera sú að Britney Spears lék í þættinum.
Spears brá sér í hlutverk einkaritara sem sækir allan sinn fróðleik í sjálfshjálparbækur. Britney hefur áður reynt fyrir sér í leiklistinni, m.a. í kvikmyndinni Crossroads og Austin Powers in Goldmember. Gagnrýnendur hafa margir farið jákvæðum orðum um leik Spears í þættinum en eins og þeir vita sem fylgst hafa með fréttum af fræga fólkinu þá hefur lánið ekki leikið við hana að undanförnu.