Ættfræðingar hafa lagst yfir ættartölur frambjóðendanna sem sækjast eftir að verða forseti Bandaríkjanna. Ýmislegt óvænt hefur komið í ljós, m.a. að Barack Obama er skyldur leikaranum Brad Pitt og Hillary Clinton tengist Angelinu Jolie, sambýliskonu Pitt.
Þá er John McCain, forsetaefni repúblikana, tengdur Lauru Bush, núverandi forsetafrú.