Leikarinn Johnny Depp leikstýrði myndbandi við nýjasta smell eiginkonu sinnar, frönsku poppstjörnunnar Vanessu Paradis. Glöggskyggnir áhorfendur segja að honum bregði fyrir í myndbandinu, en það er óstaðfest.
Myndbandið við lagið „L'incendie“ eða „Eldurinn“ er þriggja mínútna langt og þar sést Paradis dansa á sviði í bleikum kjól fyrir framan einn mann í salnum. Andlit hans sést aldrei greinilega en þar telja sumir sig sjá eiginmann söngkonunnar. Skyndilega kviknar í hljóðnemanum og gólfinu og parið hverfur í eldhafið.
„L'incendie“ er af plötunni Divine Idylle sem komst í efsta sæti vinsældalista bæði í Frakklandi og Belgíu.