Fullbókað er á opinn fund um umhverfismál með Al Gore fyrrum varaforseta Bandaríkjanna í Háskólabíói þriðjudaginn 8. apríl næst komandi. Fundurinn sem haldinn er á vegum Glitnis og Háskóla Íslands var auglýstur í blaðaauglýsingu í gær.
Strax á hádegi í dag voru allir miðar bókaðir en ósóttum pöntunum verður ráðstafað eftir 4. apríl.