Martin Scorsese myndaði The Rolling Stones á tónleikum í New York og verður myndin meðal annars sýnd í Imax kvikmyndahúsum. Mick Jagger vildi mynda risatónleika í Brasilíu en Scorsese sannfærði hann um að smærri tónleikar með meiri nánd við áhorfendur væri betra.
Scorsese sagði að hann hefði látið setja myndavélar á óvenjulega staði til að ná að búa til öðruvísi tónleikamynd.