Paris Hilton meiddist á höku er hún datt á flótta undan æsifréttaljósmyndurum í Prag í fyrradag. Hilton hrasaði þegar hún hljóp út úr tónlistarverslun þar sem ljósmyndarar sátu um hana. En það vakti athygli að unnusti hennar, rokkarinn Benji Madden, hafði ekki fyrir því að aðstoða hana á fætur strax.
En honum var ekki alls varnað því þegar hann áttaði sig á því hvað hafði gerst, aðstoðaði hann hana á fætur en áður hafði hann klofað yfir hana þar sem hún lá á gangstéttinni fyrir utan búðina.
Á Hilton að hafa sagt við Madden eftir atvikið að hún ætlaði aldrei aftur til Prag.