„Það hefur aldrei verið gert svona kynþokkafullt myndband á Íslandi,“ segir Valli Sport, umboðsmaður hljómsveitarinnar Merzedes Club.
Merzedes Club tók nýverið upp myndband við lagið Meira frelsi með upptökumanninum Gústa Jak. Hljómsveitin beitir kynþokkanum óspart í myndbandinu sem verður frumsýnt í Laugarásbíói á mánudag og miðar verða gefnir á FM957 þann sama dag. „Þetta myndband mun vekja mikla athygli,“ segir Valli og lofar því að frumsýning myndbandsins muni ekki fara framhjá neinum.