Bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon heldur tónleika í Laugardalshöll þriðjudagskvöldið 1. júlí í sumar. Simon er hvað þekktastur sem annar helmingur dúettsins Simon og Garfunkel sem hann stofnaði ásamt Art Garfunkel árið 1957, en þeir félagar sendu frá sér ódauðleg lög á borð við „Mrs. Robinson“ og „Bridge over Troubled Water“.
Simon hefur einnig átt gifturíkan sólóferil og þekkja eflaust margir lagið „50 Ways to Leave Your Lover“ frá árinu 1975. Simon hefur hlotið fjölmörg Grammy-verðlaun, fyrir samstarfið við Garfunkel og sólóferil sinn.