Fyrirsætan Kate Moss endurheimti fyrsta sætið fyrir best klæddu konurnar í bresku útgáfunni af tímaritinu Glamour. Hún náði þar með að velta söngkonunni Kylie Minouge af toppnum.
Hin 34 ára gamla Moss var valin best klædd þrjú ár í röð þangað til Minouge hafði betur árið 2007. Þetta árið hafnaði Minouge aftur á móti í 19. sæti og kennir tímaritið svörtum samfestingi í kattalíki um, en söngkonan klæddist honum í sjónvarpsþætti á síðasta ári.
„Kate hefur heldur betur snúið aftur. Einstök tískuvitund hennar er sannkallaður innblástur,“ sagði ritstjóri Glamour.
Breska leikkonan Sienna Miller náði öðru sætinu á listanum og þar á eftir komu leikkonurnar Scarlett Johansson, Rachel Bilson og Jennifer Aniston.
Söngkonan Britney Spears fékk þann vafasama heiður að vera kosin sú verst klædda og breska söngkonan Victoria Beckham hafnaði í níunda sæti.
Listinn verður birtur í maí útgáfu tímaritsins.