Hinn íslenski Þursaflokkur hefur bætt við þriðju tónleikunum á Akureyri þar sem uppselt er á þá tónleika sem skipulagðir voru á Græna hattinum. Aukatónleikarnir fara fram á miðnætti laugardaginn 12. apríl og miðasala er hafin á Miði.is og öllum afgreiðslustöðum Miða.is. Miðaverð er sem fyrr 3.500 krónur og einungis 180 miðar eru í boði, samkvæmt tilkynningu.