Það er fátt sem kemur hörðnuðum Íslendingi á óvart þegar Egill „Gillzenegger“ Egilsson er annarsvegar, enda hispurslaus með eindæmum.
Þó eru líkur á að einhverjar húsmæður í vesturbænum súpi hveljur á næstunni, því í viðtali í nýjasta tölublaði Monitors, viðurkennir Egill að hann raki á sér hreðjarnar daglega, en þó sé stundum „fínt að breyta til og fara í brasilískt vax af og til“.