Veitingastaðurinn Noma, sem er til húsa í Strandgade 89, sama húsi og sendiráð Íslands og menningarmiðstöð vest-norrænu landanna, er 19. besti veitingastaður í Evrópu samkvæmt könnun sem birt er á vefnum opinionatedabout.com.
Noma er eini veitingastaðurinn á Norðurlöndum, sem kemst á þennan lista og er einnig eini veitingastaðurinn í Danmörku, sem státar af tveimur Michelinstjörnum.
„Ég er stoltur af því að fá þennan dóm almennings," segir René Redzepi, yfirmatreiðslumaður Noma við Jyllands-Posten.
Flestir bestu veitingastaðirnir í Evrópu eru í Frakklandi, á Ítalíu og Spáni.
Listinn yfir bestu veitingahúsin