Unglingahljómsveitin Soundspell fór með sigur af hólmi í ungmennaflokki í alþjóðlegri lagasmíðakeppni. Fá piltarnir m.a. að launum fimm vikna skólavist í sumar í Berklee tónlistarskólanum í Boston.
Fram kemur á Sandgerðisvefnum 245.is, að yfir 15 þúsund lög bárust í keppnina og í lok janúar var Soundspell tilkynnt að þeir væru komnir í undanúrslit í sínum aldursflokki með tvö lög af plötunni An Ode to the Umbrella. Viku síðar voru þeir komnir í 13 laga úrslit með lagið sitt Pound og í vikunni var piltunum tilkynnt að þeir væru sigurvegarar í flokki unglinga.
Á vefnum kemur fram að strákarnir í Soundspell hafi æft á elliheimili, í líkamsræktarstöð og bílskúr. Þeir séu allir í námi, Alexander Briem söngvari sé á leiklistabraut í Kvikmyndaskóla Íslands, Áskell bassaleikar stundi nám í MH og FíH, Siggi píanóleikari sé í Kvennaskólanum í Reykjavík, Jón Gunnar gítarleikari í Verslunarskóla Íslands og Benni trommuleikari í Fjöltækniskólanum.