Magni Ásgeirsson fetar nú í fótspor tveggja merkra söngvara; Freddy Mercury og Mick Jagger. Magni syngur Jagger-lög á föstudaginn á Players og bregður sér í hlutverk Freddy Mercury með kór FSu á Selfossi í maí á Queen-skemmtun.
Hefur Magni haft á orði að ef hann syngur í hlýrabol á sýningunni og safnar mottu þá verði kórinn að vera með krullur eins og Brian May, gítarleikari Queen.