Leikkonan Mischa Barton hlaut í dag þriggja ára skilorðbundinn dóm fyrir að keyra undir áhrifum áfengis í desember í fyrra. Mischa fékk einnig 2000 dollara sekt og fyrirskipaði dómari að hún skyldi sækja þriggja mánaða námskeið um meðhöndlun áfengis.
Leikkonan mætti ekki fyrir rétt þegar dómurinn var kveðinn upp en ákæru gegn Mischu um vörslu fíkniefna var vísað frá.
Mischa er þekktust fyrir leik sinn í þáttunum The O.C en hún lék einnig í kvikmyndunum The Sixth Sense og Notting Hill.