Penn hjónin hætta við skilnað

Sean Penn og Robin Wright Penn.
Sean Penn og Robin Wright Penn. PHIL McCARTEN

Leikaraparið Sean Penn og Robin Wright Penn hafa farið fram á það við dómara í San Francisco í Bandaríkjunum að skilnaðarferli þeirra verði stöðvað en hjónin sóttu um skilnað í desember á síðasta ári. 

Sögusagnir hafa gengið um það í Hollywood að Penn hafi viljað allt til vinna til að endurvinna ástir konu sinnar og nýlega sáust þau saman á tónleikum Eddie Vedder í Berkeley í Kaliforníu. Á tónleikunum tileinkaði tónlistarmaðurinn þeim eitt laga sinna og vísaði til þeirra sem mjög sérstakra hjóna. 

Penn og Wright gengu í hjónaband árið 1996 og eiga tvö börn á unglingsaldri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir