Ivana Trump á leið í hnapphelduna í kvöld

Ivana Trump og Rossano Rubicondi
Ivana Trump og Rossano Rubicondi AP

Ivana Trump, fyrrum eiginkona kaupsýslumannsins Donald Trump, er að ganga í hjónaband á ný í kvöld. Væntanlegur eiginmaður Ivönu er ítalskur athafnamaður, Rossano Rubicondi og fer brúðkaupið fram á setri Donalds Trump á Palm Beach á Flórída. Trump er meðal gesta í veislunni ásamt börnum hans og Ivönu. Donald og Ivana skildu árið 1990.

Meðal þeirra 600 gesta sem væntanlegir eru í brúðkaupið eru foreldrar Parisar, Rick og Kathy Hilton, og tónlistarmaðurinn Neil Sedaka.

Ivana, sem er 59 ára að aldri, og Rubicondi, sem er 36 ára, eru búin að vera saman í sex ár en þau trúlofuðu sig í september á síðasta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen