Unnið er að því að fá írska tónlistarmanninn Damien Rice til þess að spila á árlegum tónleikum í Bræðslunni á Borgarfirði eystri í júlí, samkvæmt heimildum mbl.is. Til stendur að Emiliana Torrini komi einnig fram ásamt hljómsveit, og fleiri tónlistarmenn.
Damien Rice hefur áður komið til Íslands en hann kom fram á tvennum tónleikum árið 2004, auk þess var hann einn af listamönnunum sem komu fram á Ertu að verða náttúrulaus? tónleikunum sem haldnir voru í Laugardagshöllinni árið 2006, en fjölmargir íslenskir og erlendir listamenn komu þar fram.