Britney birtir vídeódagbækur sínar

AP

Britney Spears ætlar að birta vídeódagbækur sem hún hefur haldið undanfarið hálft ár, til að sýna umheiminum hvað hún hefur gengið í gegnum.

Á þessum tíma hefur hún misst forræðið yfir sonum sínum og verið lögð inn á geðdeild.

Haft er eftir heimildamanni að vídeódagbækurnar hennar innihaldi margt eldfimt.

Herma fregnir að fyrrverandi kærasti Britneyjar, Justin Timberlake, og fyrrverandi eiginmaður hennar, Kevin Federline, hafi áhyggjur af því að dagbækurnar muni opinbera ýmislegt viðkvæmt úr einkalífi þeirra.

Breska blaðið Daily Mirror hefur eftir heimildamanni:

„Justin og Kevin eru á nálum yfir því að [vídeódagbækurnar] endi á netinu. Eða það sem verra væri, að Britney fallist á að gera aðra heimildamynd fyrir MTV og birti eitthvað af myndefninu opinberlega.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar