Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen hefur áhuga áí aðal kvenhlutverkinu í fjórðu myndinni um Austin Powers. Fregnir herma að hún hafi lesið handritið og ákveðið fund með Mike Myers, sem skrifaði handritið og fer með aðalhlutverkið.
Einnig ætlar Bundchen að ræða við leikstjórann, Jay Roach, til að fá frekari hugmyndir um hlutverkið.
Gisele hefur áður leikið í kvikmyndum. Hún var í „Taxi“ ásamt Queen Latifah fyrir fjórum árum, og lék aukahlutverk í „The Devil Wears Prada.“
Myers hefur greint frá því að myndin verði reyndar meira um „doktor Evil“ en Austin Powers.