Vortónleikar Karlakórsins Þrasta bera að þessu sinni nokkurn keim af 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar, en Þrestir fagna um þessar mundir 96 ára afmæli kórsins.
Á tónleikunum verða sungin lög eftir hafnfirsk tónskáld og einnig lög við ljóð hirðskálds Karlakórsins Þrasta.
Kórinn mun halda eftirtalda tónleika á næstunni:
Sunnudaginn 20. apríl í Víðistaðakirkju, kl. 16.
Miðvikudaginn 23. apríl í Hafnarborg, kl. 20.
Fimmtudaginn 24. apríl í Neskirkju, Reykjavík, kl. 16.
Laugardaginn 26. apríl í Grafarvogskirkju í Reykjavík, kl. 16.