Búið er að birta á myndbandavefnum YouTube myndskeið, sem sýnir gerð myndbands Eurobandsins við lagið This is my Life, sem frumsýnt var í gær. Myndband Eurobandsins er í svipuðum stíl og þúsundir myndbanda á Youtube þar sem fólk mæmar fræg lög.
Euroband mun flytja lagið sitt 22. maí í Belgrad í undankeppni Eurovision og vonandi aftur tveimur dögum síðar í úrslitunum.