Norðlensk fegurð krýnd

Norðlenskar fegurðardísir hafa æft stíft að undanförnu, en Ungfrú Norðuland 2008 verður krýnd í Sjallanum á Akureyri á laugardagskvöld. 15 stúlkur keppa um titilinn í ár, en sú sem hreppir hnossið fer suður og tekur þátt í keppninni Ungfrú Ísland. Aðstandendur keppninnar fyrir norðan segja að undirbúningur hafi gengið vel.

Ekki er allir á eitt sáttir um gildi fegurðarsamkeppni og þykir mörgum að um úrelt fyrirbæri sé að ræða. Aðstandendur keppninar segja þvert á móti að stúlkurnar hafi haft mjög gaman og gott af þeirri þjálfun sem þær hafa fengið fyrir keppnina.

Bein útsending verður frá keppninni á sjónvarpsstöðinni N4.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að finnast þú svo umsetinn að þú eigir erfitt með að gera nokkurn skapaðan hlut. Ef þú missir af tækifæri fyrir hádegi færðu annað í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að finnast þú svo umsetinn að þú eigir erfitt með að gera nokkurn skapaðan hlut. Ef þú missir af tækifæri fyrir hádegi færðu annað í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar