„Ég ætla að syngja „Ekkert breytir því“ með Sálinni hans Jóns míns. Ég er mikill aðdáandi Sálarinnar og Stefáns Hilmars,“ segir Jón Gunnarsson söngvari sem er meðal þeirra sem koma fram við opnunarhátíð Listar án landamæra.
Sjálfur er Jón ekki óvanur því að taka lagið. „Ég er búinn að vera að æfa mig mjög mikið að syngja, í mörg ár,“ segir Jón.