Árleg keppni skeggprúðra stendur nú yfir í þýska bænum Eging am See en þar keppa karlmenn um prúðasta skeggvöxtinn. Þjóðverjar þykja mjög framarlega í þessari keppnisgrein og þeir unnu t.d. í 17 flokkum á síðasta heimsmóti sem fór fram í Bretlandi í fyrra.
Eins og sést á meðfylgjandi myndum er skeggvöxtur keppenda með ýmsu móti.