George W. Bush, Bandaríkjaforseti, bregður gjarnan undir sig betri fætinum og dansar þegar tækifæri gefst. Hann sat kvöldverðarboð viðskiptaráðs New Orleans þar sem jasshljómsveit lék undir borðum og Bush stóðst ekki mátið og dillaði sér við tónlistina.