Veðbankar virðast telja, að framlag Rússlands sé einna sigustranglegast í Eurovision söngvakeppninni, sem fer fram í Belgrad í maí. Ekki er gert ráð fyrir að íslenska lagið verði ofarlega.
Veðbankinn paddypower.com telur líkur á að Rússar sigri 7 á móti 2. Næst koma Serbar, með 9 á móti 2 og Írar með 5 á móti 1. Líkurnar á því að Ísland sigri eru taldar 33 á móti 1.