People tímaritið hefur greint frá því að leikkonan unga Lindsay Lohan hafi fallið á áfengisbindindi sínu og sést þambandi kokteila og keðjureykja sígarettur á skemmtistað í New York.
Stúlkan hefur lengi átt í erfiðleikum með að hafa stjórn á drykkju sinni en hún fór þrisvar sinnum í meðferð á síðasta ári. Það er því ljóst að stelpan hefur gefist upp á bindindinu og farið aftur í sama gamla farið.