Maður að nafni Roy Smith hefur höfðað mál á hendur söngvaranum Sting. Smith heldur því fram að hann hafi veitt Sting innblástur að lögunum Roxanne og Message in a Bottle en aldrei fengið greitt fyrir ómakið. Eitthvað hefur Smith verið lengi að velta málaferlunum fyrir sér því bæði lögin eru um 30 ára gömul.