Breska söngkonan Amy Winehouse hefur verið handtekin af Lundúnalögreglunni en samkvæmt Sky fréttastofunni er hún grunuð um að hafa ráðist á mann eftir að hafa farið út að skemmta sér í Camden Town í London.
Lögreglan neitar að nefna nöfn en staðfestir að hafa handtekið 24 ára konu vegna gruns um líkamsárás.