Uppáklæddir Verzlunarskólanemar dönsuðu við harmónikkuundirleik á Ingólfstorgi í dag, á hinum árlega peysufatadegi skólans.
Fyrst var gengið í langri halarófu frá Hlemmi og sem leið lá niður Laugaveginn.
Löng hefð er fyrir peysufatadeginum í Versló, og var þetta í áttugasta og fimmta sinn sem hann er haldinn.
Það eru annars árs nemar sem skrýðast peysufötum og pípuhöttum í tilefni dagsins.