Jamie Lynne Spears, litla systir Britney Spears, gengur með stelpu, samkvæmt bandaríska tímaritinu Life & Style. Stúlkan á að koma í heiminn 29. júní.
Móðir systranna ku vera í skýjunum yfir því að fá litla ömmustelpu, en hún á fyrir tvo litla ömmstráka. Life & Style segir einnig að kærasti Jamie Lynne Spears sé af einhverjum ástæðum stressaður yfir því að eiga von á stúlku.