Á Facebook-síðu Vesturports kemur fram að stórleikarinn Hilmir Snær Guðnason muni taka við hlutverki Gaels Garcia Bernals í uppsetningu Vesturports á Kommúnunni.
Ekki er annað hægt að segja en að Hilmir Snær sé fullkominn í hlutverkið því leikaraliðið berar sig reglulega í sýningunni og enginn íslenskur leikari hefur berað sig oftar en einmitt fyrrnefndur Hilmir Snær.