Um 250 Vespueigendur fóru í hópakstur um götur Berlínar í dag í tilefni af því að veðrið er orðið nógu gott til að aka um á þessum farartækjum.
Ítölsku Vespurnar eru algeng sjón á götum þýsku höfuðborgarinnar á þessum árstíma, sérstaklega í „smart“ hverfum eins og Mitte og Prenzlauer Berg, þar sem námsmenn og ungt fólk með sérmenntun sækist eftir að búa.