Meðlimir hljómsveitarinnar Coldplay hafa keypt gamalt bakarí í Primrose Hill-hverfinu í London. Þeir segja húsið afskaplega ljótt en kjörið sem miðstöð fyrir sveitina, sem felustað fjarri ljósmyndurum og aðdáendum.
„Í nokkur ár gekk ég daglega framhjá þessu húsi og hugsaði með mér hvað þetta væri rosalega ljótt hús,“ segir Chris Martin söngvari. „Einn daginn var svo komið skilti á húsið, það var auglýst til leigu, og við skelltum okkur á það.“
Hljómsveitin hyggst hafa bakaríið sem samanstað meðan hún kynnir nýju plötuna Viva La Vida Or Death And All His Friends.