Búist er við því að Britney Spears muni berjast við Whitney Houston um hvor þeirra selji fleiri plötur um næstu jól.
Britney, sem hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu, virðist höfða vel til plötuútgefanda síns sem vill að hún gefi út nýja plötu fyrir næstu jól, líkt og Whitney mun einnig gera. „Britney hefur verið í miklu stuði í hljóðverinu að undanförnu.
Þegar hún var við upptökur á síðustu plötu sinni átti hún við erfiðleika að stríða í einkalífinu.
Nú ætlar hún hins vegar að sýna hvað í henni býr,“ sagði heimildarmaður í samtali við breska blaðið The Sun.