Brad Pitt mætti í afmælispartý hjá söngvara U2, Bono, um helgina í Monakó en Bono varð 48 ára um helgina. Bono og eiginkona hans héldu upp á afmælið með vinum á Sass Café þar sem þau borðuðu dýrindismálsverð. Angelina Jolie, sambýliskona Brad Pitt, mætti ekki í afmælið en það gerði hins vegar Albert prins.