Bandaríska leikkonan Angelina Jolie, staðfesti í sjónvarpsviðtali í dag að hún eigi von á tvíburum með leikaranum Brad Pitt.
Viðtalið var tekið fyrir NBC sjónvarpsstöðina á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag en Jolie er stödd þar til þess að auglýsa nýjustu mynd sína, teiknimyndina Kung Fu Panda. Jolie var að auglýsa myndina með leikaranum Jack Black en þau talsetja myndina ásamt Jackie Chan, Dustin Hoffman, og Lucy Liu.