Bandaríska söngkonan Jessica Simpson vill endilega eignast börn með kærastanum sínum, ruðningshetjunni Tony Romo. Þá segist hún einnig vilja giftast kappanum. Hún segist hins vegar hafa orðið steinhissa á því þegar aðdáendur Dallas Cowboys-ruðningsliðsins kenndu henni um slakt gengi liðsins á síðustu leiktíð, en sumir töldu að Romo hefði einbeitt sér meira að kærustunni en vinnunni. Romo er 28 ára gamall en Simpson 27.